Gagnaflutningar úr Hellusundi
Á síðasta ári fór af stað áhugavert og spennandi verkefni sem leitt er af nokkrum senatorum. Nefnd þessara atorkusömu senatora hefur fengið nafnið sögunefndin.
Verkefni felst í því að fara í gegnum gagnasafn JCI Íslands sem safnast hefur fyrir í risinu í Hellusundinu, grisja út það sem er ónýtt og koma sögulegum gögnum fyrir á skipulagðan hátt.
Ætlunin er að skrásetja þannig sögu hreyfingarinnar, bæði í máli og myndum.
Síðastliðinn miðvikudag tóku 6 senatorar, Árni Árna, Karl Einars, Jóhann Guðvarðar, Ragnar Vals, Pétur Valdimars og Ingó lansi, og 1 nýliði, Einar Valmunds, sig til og fluttu restina af þeim gögnum sem eftir voru í risinu í Hellusundi í húsnæði sögunefndarinnar í Súðarvogi. Tóku 2 senatorar sem þar ráða ríkjum, þau Sigríður Jóna og Hlynur Árna, við gögnunum. Nú bíður sögunefndarinnar næg og skemmtileg vinna. J