Laugardaginn 23. apríl kom saman góður hópur krakka og fullorðinna við Esjurætur. JCI Esja stóð þar fyrir páskaeggjaleit í skóginum. Að leit lokinni var boðið uppá heitt kakó og brauð. Dregið var í páskabíóhappadrætti og vann stúlka að nafni Freyja 3 miða á fjölskyldumynd að eigin vali. Áður en haldið var heim á leið fengu allir krakkarnir páskaegg að gjöf. Góðri fjölskylduskemmtun var þar með lokið og allir héldu sælir til síns heima. J