Hin árlega JCI útilega hreyfingarinnar var haldin á tjaldsvæðinu á Selfossi um síðustu helgi. Einar Valmundsson hvatti til og sá um skipulagningu á útilegunni og kunnum við honum bestu þakkir fyrir.
Félagarnir byrjuð að streyma á svæðið strax á föstudaginn og síðan bættust fleiri við á laugardaginn og enn aðrir kíktu í heimsókn. Fengum ljómandi veður og farið var t.d í hinn geysivinsæla kubba-leik, börnin fóru í kapphlaup og fengu vegleg verðlaun. Hitað var upp í kolunum og hinar ýmsu steikur og meðlæti grillað eftir óskum hvers og eins. Mikið spjallað, rætt og við nutum þess að vera saman úti í náttúrunni. Frábær félagsskapur. Við getum strax farið að láta okkur hlakka til næstu útilegu.
Hefði verið gaman að vera með ykkur – lítur meiri háttar skemmtilega út og veðrið gott!
Glæsilegur hópur, flottar myndir… hlakka næsta árs 🙂