Vilt þú…..
— *Auka færni þína í að halda kynningar og ræður ?* — *Kynnast nýju fólki og stækka tengslanet þitt ?* — *Vera hluti af alþjóðlegri hreyfingu ungs fólks ?* Fyrsta nýliðanámskeið haustsins fer af stað mánudaginn 29.ágúst n.k. Það verður haldið í húsakynnum JCI, Hellusundi 3 við hliðina á Kvennaskólanum. Á fyrsta kvöldinu verður starf JCI hreyfingarinnar kynnt. Á næstu kvöldum verður fjallað um – Árangursríkt hópastarf, mánudagskvöldið 5.september – Skilvirka fundi, mánudagskvöldið 12.september – Skipulagningu viðburða föstudagskvöldið 16.september Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu og verður slúttað með gleðskap á lokakvöldinu. Nánari upplýsingar um starf JCI má finna á heimasíðunni https://www.jci.is/ Gott væri ef þátttaka yrði staðfest með því að senda póst á Hlökkum til að sjá ykkur 🙂 |