Vilhjálmur Grímsson
Fæddur 3. ágúst 1942
Lést 12. nóvember 2011
Útförin fór fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn 18. nóvember kl. 13
Kvatt hefur þennan heim Vilhjálmur Grímsson, fyrrverandi landsforseti og senator. Mig langar með grein þessari að minnast stuttlega aðkomu hans að starfi JC hreyfingarinnar á Íslandi. Vilhjálmur var virkur í starfi JC Suðurnesja, fyrsta formlega aðildarfélaginu sem stofnað var árið 1967. Vilhjálmur varð landsforseti JC Íslands og starfaði sem slíkur á árunum 1974 – 1975. Vilhjálmur starfaði vel og lengi fyrir JC hreyfinguna og hlaut að launum útnefningu sem senator eða ævifélagi. Eftir að hefðbundnu JC starfi lauk tók Vilhjálmur lengi vel virkan þátt í starfi Hins íslenska senats.
Ég hitti Vilhjálm aðeins á 50 ára afmælisfagnaði hreyfingarinnar á síðasta ári. Þar voru saman komnir um helmingur þeirra landsforseta sem gegnt höfðu embættinu á þeim 50 árum sem hreyfingin hafði starfað. Einn af öðrum vorum við kynntir inn í salinn en Vilhjálmi hlotnaðist sá heiður að vera fyrstur þar sem hann var sá okkar er fyrst gegndi embættinu. Það var mér heiður að hitta Vilhjálm á þessari hátíðarstundu.
Fyrir hönd JCI hreyfingarinnar á Íslandi vil ég votta eftirlifandi eiginkonu Vilhjálms, Vigdísi Pálsdóttur og fjölskyldu þeirra, innilegustu samúðarkveðjur. Megi minning Vilhjálms lifa um ókomna tíma.
Ingólfur Már Ingólfsson
Landsforseti JCI Íslands 2011