JCI Reykjavík hélt upp á Reykjavíkurdaginn laugardaginn 1. sept. Yfirskrift dagsins var Miklihvellur sem er vísun í það góða og kraftmikla starf sem framundan er í haust. Dagskrá dagsins var fjölbreytt, má þar nefna fyrirlestra um markmiðasetningu, keppni og leik sem sýndi á skemmtilega máta samsetningu hópsins. Um kvöldið var svo slegið á létta strengi með partý og grilli.