Búið er að uppfæra efni um landsþingið okkar sem verður haldið eftir rúmar 2 vikur.
Nú er hægt að skoða dagskrá þingsins, og jafnframt sjá hverjir eru skráðir á þingið.
Það er að myndast skemmtileg stemning í kringum morðgátuþemað á föstudagskvöldinu og verður áhugavert að sjá morðingja, fórnarlömb og fulltrúa réttlætis í fullum skrúða. Ætli einhver mæti sem Hercule Poirot, Sherlock Holmes, Jack the Ripper eða bara sem Geirfinnur?
Er ekki örugglega búið að skrá þig á þingið? Ef ekki geturðu græjað það hér: Skráning á landsþing