Verðlaunin “Framúrskarandi ungir Íslendingar” eru veitt árlega af JCI Íslandi og eru fyrst og fremst hvatningarverðlaun til ungs fólks á aldrinum 18 til 40 ára sem hafa fengist við krefjandi verkefni. Lögð er áhersla á að verðlauna ungt fólk sem skarað hefur framúr og gefið af sér til samfélagsins. Jafnframt eiga þessi einstaklingar það sameiginlegt að vera góðar fyrirmyndir annara.
Í gær fimmtudag, 5. nóvember heiðraði JCI Ísland þrjá framúrskarandi unga Íslendinga, þeir eru:
Guðjón Már Guðjónsson, frumkvöðull, fyrir störf á sviði viðskipta og frumkvöðla,
Páll Óskar Hjálmtýsson, tónlistarmaður fyrir störf / afrek á sviði menningar,
Völundur Snær Völundarson, meistarakokkur fyrir einstaklingssigra og /eða afrek.
Forseti Íslands Hr. Ólafur Ragnar Grímsson er verndari verkefnisins og afhenti þessum þremur framúrskarandi ungu Íslendingum verðlaunagripina við hátíðlega athöfn í Hugmyndahúsi Háskólanna.