Kynningarkvöld JCI
Kynningarkvöld – 4. nóvember 2015 kl. 20:00 í Hellusundi 3.
Er JCI eitthvað fyrir þig?
JCI er fyrir alla á aldrinum 18-40 ára og er vettvangur til að sækja fullt af skemmtilegum námskeiðum, víkka út tengslanetið og ná sér í dýrmæta reynslu með því að hrinda í framkvæmd eigin hugmyndum og þeirri þekkingu sem maður hefur aflað sér.
Á fyrsta kvöldinu kynnum við hreyfinguna og þátttakendum gefst tækifæri til að kynnast félögum og fá betri innsýn í starfið. Við segjum frá því hvað það er sem við gerum, af hverju, hvernig og hvað er framundan hjá okkur. Einnig hvernig áhugasamir geti tekið þátt og notið ávaxta starfs okkar. Við förum við yfir þær leiðir sem við notum til að byggja upp sterka einstaklinga og hvernig það nýtist þér til að hafa jákvæð árif á samfélagið. Jafnframt verða næstu þrjú kvöld kynnt lauslega; Hvað þau ganga út á, hvers má vænta af þeim og hvaða þekkingu/færni þátttakendur mega búast við að öðlast.
Á kvöldinu verður hægt að skrá sig á ókeypis námskeiðsseríu JCI sem verður haldið næstu þrjá miðvikudaga þar á eftir:11
11. nóv: Árangursríkt hópastarf
18. nóv: Skilvirkir fundir
25. nóv: Skipulagning viðburða
Hlökkum til að sjá þig
Kveðja
Skipuleggjendur
Skráning
Bookings are closed for this event (For members only (then you need to log in or register) - or the event has already started and therefore it is closed for bookings)
Dags. og tími:
04. Nov 2015
20:00 - 22:00
Staður:
JCI Húsið
Hlaða niður viðburð í iCal
Flokkur: