Ræða 1 – Ræðunámskeið JCI Íslands
Það er vel þekkt að stærstur hluti fólks á erfitt með að halda ræðu af öryggi og sannfæringu. Algengasti misskilningurinn er þó að þetta sé á einhvern hátt meðfæddur eiginleiki, að sumir hafi þetta í blóðinu umfram aðra. Hið rétta er að öll samskipti eru lærð hegðun og það á einnig við um ræðumennsku.
Það sem flesta skortir einfaldlega er fyrst og fremst:
- leiðsögn
- æfing
- uppbyggileg endurgjöf
JCI hreyfingin býður upp á allt þrennt.
Innihald námskeiðs
Á Ræðu 1 eru þátttakendur þjálfaðir í grundvallaratriðum ræðumennskunnar og fá tækifæri að flytja ræður fyrir hin ýmsu tilefni. Meðal þeirra má nefna tækifærisræður, mótmælaræður, söluræður og kappræður og eru þátttakendur þjálfaðir jafnframt í líkams- og raddbeitingu, notkun hjálpargagna við flutning o.fl.
Fyrirkomulag
Námskeiðið tekur í heild 6 kvöld og þátttakendur semja og flytja ræður fyrir öll kvöldin utan þess fyrsta.
Æskilegur fjöldi þátttakenda er 8-12 manns á hverju námskeiði. Þess má geta að þetta námskeið er viðurkennt af öllum stéttarfélögum sem veita í mörgum tilfellum styrki fyrir þessu námskeiði. JCI félögum stendur það hinsvegar til boða innifalið í árs félagsgjaldi.
Skráning
Aðildarfélög JCI Íslands halda Ræðu 1 námskeiðið reglulega. Við hvetjum félagsmenn sem og aðra til að fylgjast með á heimasíðunni og/eða að skrá sig á lista áhugasamra um ræðunámskeið, sjá form hér hægra megin. Einnig er hægt að skrá sig á póstlista JCI Íslands hér á vefnum til þess að fá fréttir af starfinu og um upplýsingar um námskeið á döfinni.