Samstarfsaðilar
Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda (NKG) er hugmyndasamkeppni fyrir nemendur í 5. 6. og 7 bekk í grunnskóla. JCI félagar þjálfa nemendur í framsögu og kynningum í aðdragenda keppninnar sem fram fer að vori.
TEDx Reykjavík er sjálfstæður TED viðburður þar sem fólk kemur og deilir sinni “Ted-like” reynslu, fræðir áheyrandann og skilur hann eftir með góð skilaboð. JCI er í samstarfi við TEDx Reykjavík og sér um að þjálfa fólk fyrir kynningarnar.
Félagsmálaskóli alþýðu er starfræktur af Alþýðusambandi Íslands og BSRB. MFA, Menningar- og fræðslusamband alþýðu, fer með rekstur og málefni skólans. Hlutverk hans er að auka þekkingu talsmanna stéttarfélaga og efla þá í starfi til þess að þeir séu betur í stakk búnir að vinna að bættum lífskjörum launafólks.
JCI býður upp á námskeið í fundastjórnun og fundaritun.
Prentlausnir bjóða upp á alhliða prentlausnir og hraða þjónustu. Prentlausnir er góður samstarfsaðili JCI.
AIESEC gefur ungmennum tækifæri til að gerast heimsborgarar, hafa áhrif á heiminn og öðlast hagnýta reynslu og færni sem skiptir máli í dag. Markmið Aiesec er að stuðla að friði og skapa fólki tækifæri til að nýta hæfileika sína til hins ítrasta.
JCI er samstarfsaðili AIESEC.
JCI er alþjóðlegur samstarfsaðili Sameinuðu þjóðanna og er samstarfið sterkt. Merki sameinuðu þjóðanna er einnig að finna í merki JCI hreyfingarinnar.