Landhótel

Landhotel er glænýtt hótel sem opnaði í júní 2019. Hótelið er glæsilegt fjögurra stjörnu hótel á besta stað á suðurlandi. Hótelið er hannað með íslenska náttúru að leiðarljósi og hefur alls 69 herbergi sem eru öll mjög rúmgóð og með frábært útsýni til allra átta.

Staðsetning Landhótels er alveg einstök með drottningu okkar Heklu í næsta nágrenni og útsýni til allra átta. Hér er engin sjónmengun frá borg eða bæ og er stórkostlegt að vera á útsýnissvölum hótelsins þegar Norðurljósin æða yfir stjörnubjartan himinninn. Í 1-3 tíma radíus eru flestir áhugaverðustu ferðamannastaðir suðurlands og eru óteljandi afþreyingarmöguleikar í boði eins og hestaferðir, jöklaferðir, fjallgöngur, dagstúrar í Landmannalaugar, Þórsmörk eða Þjórsárdal má nefna sem dæmi.

Tindur er veitingastaður Landhótels sem býður upp á “a la carte” matseðil úr ferskum hráefnum úr heimabyggð og endurspeglar matseðill okkar það sem fæst úr nánasta umhverfi. Við erum með snilldarkokka sem færa fram dýrindis rétti og meðlæti. Ef þú vilt eyða deginum í ævintýraferð um sveitina þá getum við útbúið nestispakka fyrir þig.

Landhótel er tilvalið fyrir hópa til að koma í ráðstefnu- eða hvataferðir, en Landhótel er með glæsilega fundaraðstöðu fyrir stóra sem smáa fundi. Á Landhóteli færð þú að njóta einstakrar náttúru og þú getur alltaf gert ráð fyrir að fá vinalega og góða persónulega þjónustu.

  • Landhótel
  • Við Landveg (Road nr 26)
  • 851 Hella